Hildibrandur bóndi verkar ferlíkið

Syðra er mikið færst í fang

fleytan sigin klýfur dröfn.

Kúvent hefur Key Chi Yang

kúrsinn er á Bjarnarhöfn.


mbl.is Risahákarl í netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af Ólafi Stefánssyni, kvennaknattspyrnu og silfurskugga

Að þessu sinni er kjör íþróttamanns ársins sem leið aðeins formsatriði. Hátíðin verður ein stór lofgjörð um Ólaf Stefánsson. Allt gott á Ólafur skilið fyrir gildan þátt í stórafrekinu síðsumars. Hann sýndi þjóðinni að heilinn stendur á bak við árangur í íþróttum sem öðru. Til hamingju Ólafur.

Kannski má segja það ólán kvennaknattspyrnunnar að hafa náð þessum ótrúlega árangri í silfurskugga. Innilega til hamingju með árangurinn.


mbl.is Hver verður íþróttmaður ársins?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heil og sæl

Komið öll sæl og blessuð.

Ég ætla að skoða hve duglegur ég verð að setja inn hugmyndir mínar um líðandi stund. Kannski verður þetta til í stutta stund eða lengri ... allt kemur það í ljós.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband